skólar.is - Háaleiti
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

útskriftarferð skólahóps var miðvikudaginn 26.maí og fengum við ótrúlega flott veður fyrir daginn.

Við tókum strætó niður í Grænásbrekku, fórum þar í leiki og fjör. Síðan fórum við út á Fitjar og heilsuðum fuglunum og gáfum þeim brauð. Svo var förinni heitið til Stekkjarkots og því miður sat hurðin á sér svo við náðum ekki að skoða innanhúss, en gátum skoðað gamla fjárhúsið. Þá tók við landnámsdýrin við Víkingaheima, þar voru kálfar, kindur, heimalingar sem fengu pela, hænur, geitur og kanínur. Kanínurnar vildu gjarnan borða Njólann sem við týndum við Stekkjarkot. Síðan voru Víkingaheimar skoðaðir, við fórum í Víkingaklæði og fræddumst um m.a. Leif Eiríksson og för Íslendings til USA. Að lokum fórum við heim til hennar Ástu og grilluðum pulsur og drukkum djús og fengum að leika með dótið sem drengirnir hennar eiga, heilsa Hamstrinum Lúlla. Tókum síðast strætó aftur heim og þar voru einhverjir mjög þreyttir eftir langan dag og mikið gengið.

kveðja Ásta Kristín og Þóra