skólar.is - Háaleiti
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

Umhverfismennt

 

Við höfum sett saman markmið og leiðir sem hægt er að fara til að auka vitund og viðhorf starfsfólks og barna um mikilvægi þess að vernda og bera virðingu fyrir nátturu og umhverfi.

 

 

Markmið:

Að börn og starfsfólk læri að umgangast umhverfið og náttúruna af virðingu.

Að minnka rusl sem fer frá okkur og minnka vatns- og orkunotkun.

Farið sparlega með allt efni, það endurnýtt og endurunnið eins og kostur er. 

Flokka og skila til endurvinnslu eins og við á.

Fræða bæði börn og starfsfólk um gagnsemi þess að endurvinna og nýta.

 

Leiðir:

Pappír

-       Fara sparlega með allan pappír, kenna börnunum að nýta vel pappírinn, prenta báðu megin á pappírinn, nýta afgangspappír sem minnismiða, pappírsgerð, fara með dagblöð og annan afgangspappír í endurvinnslugám.

Endurnýting

-       Starfsfólk og börn hvött til að koma með hluti að heiman sem ekki er verið að nota og þeir nýttir í könnunarleik og hlutverkaleik, pappír er endurnýttur, umbúðir og annað sem fellur til á leikskólnum er nýtt í listasmiðju.

Flokkun

-       Sett eru í sérstaka kassa rafhlöður, bylgjupappír, dagblaðapappír og annar pappír sem skilað er á viðeigandi staði til endurvinnslu.

Vatns- og orkunotkun

-       Slökkt á hitaskápum þegar þeir eru ekki í notkun, muna að slökkva ljós þar sem engin er og þegar það er óþarfi, hafa ofna rétt stillta, láta ekki vatn renna að óþörfu.

 

 

Hreint land

-       Ganga vel um garðinn okkar, tínum rusl sem við sjáum í gönguferðum, göngum vel um bæði inni og úti, komum fram    við náttúruna af virðingu og miðlum umhverfisvænni hugsun til hvors annars.