Áhersluþættir heilsustefnunnar eru hreyfing, listsköpun og næring. Öll börn fá skipulagðar stundir með fagstjórum. Fagstjóri í hreyfingu stuðlar að líkamlegri og andlegri vellíðan barnanna. Hreyfing leiðir af sér aukna félagsfærni og leikgleði sem eflir vináttubönd. Fagstjóri í listum stuðlar að gleði og vellíðan barnanna með því að kynna fyrir þeim fjölbreyttan efnivið, vinnuaðferðir og áhöld. Áhersla er lögð á að börnin tjái sig frjálst og að sköpunargleðin fái að njóta sín.
Hreyfing
Í leikskólanum fær hvert barn markvissa hreyfistund 1-2 sinnum í viku, sem fagstjóri í hreyfisal sér um að skipuleggja og kenna. Frá 1. maí - 1. september lengist útiveran og flytjast hreyfistundir þá út þar sem farið er í leiki og í ýmsar vettvangs- og gönguferðir.
Listsköpun
Myndsköpun stuðlar að gleði og vellíðan. Hvert barn fer í myndsköpun a.m.k. einu sinni í viku. Þar er unnið með fjölbreyttan efnivið úr náttúrunni og verðlaust efni af ýmsu tagi. Unnið er jafnt með hópaverkefni og einstaklingsverkefni. Skynjun og tjáning eru lykilorð og lögð er áhersla á að vekja forvitni og rannsóknarlöngun og að þau vinni út frá eigin hugmyndum. Þar gefast tækifæri til að þjálfa upp færni og læra nýja tækni.
Frá 1. maí - 1. september færist vinna barnanna út þar sem unnið er með myndsköpun úti í náttúrunni.
Næring
Í næringu er lögð áhersla á hollt heimilisfæði með áherslu á fjölbreyttni og ferskleika. Markmiðið er að auka grænmetis- og ávaxtaneyslu og að nota fitu, salt og sykur í hófi. Við samsetningu matseðla er tekið mið af markmiðum Lýðheilsustöðvar varðandi næringu barna.