Velkomin í leikskólann
Við bjóðum ykkur foreldra/forráðamenn og barnið ykkar velkomin í leikskólann
Leikskólinn var opnaður 1. september 2008 og er sjálfstætt starfandi skóli, rekinn af Skólum ehf., og erum við með þjónustusamning við Reykjanesbæ. Hér gilda í meginþáttum sömu reglur og í öðrum leikskólum Reykjanesbæjar og fylgjum við sömu gjaldskrá.
Boðið er upp á sveigjanlegan vistunartíma, þ.e. 4,5,6,7 og 8 tíma, og síðan er hægt að kaupa svokallaða opnun og lokun sem er 30 mínútur fyrir og/eða yfir umsamdan vistunartíma.
Leikskólinn starfar eftir Heilsustefnunni og er Heilsuleikskóli. Frumkvöðull heilsustefnunnar Unnur Stefánsdóttir er framkvæmdarstjóri skólasviðs Skóla ehf. og er því næsti yfirmaður leikskólastjóra.
Háaleiti er tveggja deilda aldurskiptur leikskóli og er staðsettur á háskólasvæðinu Ásbrú. Deildarnar heita Kotvogur og Djúpivogur. Tveir fataklefar eru í húsinu, annar er fyrir yngri börnin og hinn er fyrir þau eldri.
Í miðrými hússins er stór og langur gangur sem er m.a. nýttur í hreyfingu og málörvun. Öðru megin við ganginn eru tvær deildar og fataklefar, hinum megin við ganginn er ein deild, listasmiðja og hreyfisalur.
Kjörorð okkar er "heilbrigð sál í hraustum líkama".