Velkomin í heilsuleikskólann Háaleiti
Við bjóðum ykkur foreldra/forráðamenn og barnið ykkar velkomin í heilsuleikskólann Háaleiti.
Að byrja í leikskóla er ný reynsla fyrir barnið og foreldra/forráðamenn þess og er því mikilvægt að huga vel að hvernig staðið er að aðlöguninni. Nauðsynlegt er að gefa barninu nægan tíma í upphafi leikskólagöngunnar til að kynnast nýju umhverfi og að það öðlist öryggistilfinningu. Barnið þarf góðan tíma til þess að kynnast leikskólanum, nýju umhverfi, starfsfólkinu og hinum börnunum. Á meðan á aðlöguninni stendur er mikilvægt að foreldrar/forráðamenn kynnist starfsfólki og því starfi sem fram fer í leikskólanum. Með því er lagður góður grunnur varðandi áframhaldandi leikskólagöngu barnsins.
Til þess að ná þessum markmiðum höfum við sérstakt aðlögunarferli bæði við upphaf leikskólagöngunnar og þegar þau flytjast frá yngri helmingi yfir á eldri helming. Foreldrar/forráðamenn fá aðlögunaráætlun sem er unnin í samvinnu við þá og er ferlið þannig að dvöl barnsins lengist dag frá degi á meðan tími foreldra styttist. Þegar börn flytja á milli deilda er það aðallega í höndum starfsfólks að sjá um þá aðlögun og er sérstök áætlun sem farið er eftir.
Aðlögunaráætlun
1. dagur
Barnið kemur í heimsókn með foreldri í 1 klst.
2. dagur
Barnið dvelur í 2 klst.
með foreldri, sem bregður sér frá innanhúss.
3. dagur
Barnið dvelur í 3 klst.
foreldri dvelur fyrsta klukkutímann.
4. dagur
Barnið dvelur í 5 klst.
Foreldri dvelur í hálfa klst. kveður og dvelur síðasta hálftímann.
5. dagur
Barnið dvelur þann tíma sem það á að dvelja á leikskólanum,
ef það er tilbúið. Óskað er eftir því að foreldrar sækji barnið tímanlega ef kostur er.