Hagnýtar upplýsingar
Dvalarsamningur
Allir foreldrar skrifa undir dvalarsamning þegar barnið byrjar leikskólagöngu sína og biðjum við foreldra um að kynna sér ákvæði hans vel. Í honum er m.a. að finna upplýsingar um dvalartíma barnsins. Við viljum biðja foreldra um að fara ekki fram yfir þann tíma sem samið hefur verið um. Vinnutími starfsmanna er skipulagður með tilliti til dvalarsamninganna.
Að koma og fara
Þegar barnið kemur í leikskólann á að fylgja því inn á sína leikstofu og afhenda starfsmanni og þegar barnið er sótt er mikilvægt að láta starfsmenn vita. Mjög mikilvægt er að foreldrar kveðji barnið. Upplýsingatöflur í fataklefum leikskólans eru ætlaðar til að koma upplýsingum á framfæri við foreldra/forráðamenn. Fylgist vel með upplýsingatöflunni.
Veikindi og fjarvistir
Vinsamlegast látið okkur vita ef barnið kemur ekki í leikskólann vegna veikinda eða af öðrum ástæðum. Best er að barnið hafi náð fullum bata eftir veikindi svo þau geti tekið fullan þátt í starfsemi leikskólans. Við tökum ekki á móti börnum sem þurfa að vera inni vegna þess að þau eru alveg að verða veik. Börn eru smitberar á þeim tíma og geta því smitað önnur börn. Læknar hafa staðfest að börn verða ekki veik af því að vera úti í fersku lofti og að börnum með kvef verður ekki meint af því. En eftir veikindi er æskilegt að börn séu heima hitalaus í a.m.k. sólahring og geta þá fengið að vera inni í 2 daga á leikskólanum.
Lyfjagjafir
Í samráði við HSS hafa verið gerðar reglur um lyfjagjöf í leikskóla. Þar segir að eingöngu megi gefa astma- ofnæmis– og ofvirknilyf í leikskólum og þá eftir skriflegum fyrirmælum frá lækni. Lyfin eru geymd á öruggum stað. Fúkkalyf sem börn taka í stuttan tíma á ekki að þurfa að gefa í leikskólanum. Að sögn lækna er nóg að gefa slík lyf með mjólk að morgni, þegar komið er heim og fyrir svefn. Reglur þessar eru settar til að stuðla að öryggi barna í leikskóla. Samkvæmt þessu megum við ekki gefa börnum önnur lyf en fyrr greinir og biðjum við foreldra að virða það.
Óhöpp og slys
Börnin eru tryggð í leikskólanum. Einn starfsmanna er öryggisfulltrúi leikskólans, sem hefur yfirumsjón með öryggismálum barnanna. Ef slys eða óhöpp verða eru þau skráð í slysaskýrslur, sem eru síðan notaðar til að athuga hvort slysagildrur eru í leikskólanum eða á leiksvæðinu.
Börn að sækja börn
Samkvæmt tilskipun frá Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar er börnum undir tólf ára aldri ekki heimilt að sækja börn í leikskólann. Foreldrar eru beðnir um að virða þessa reglu.
Sumarlokun
Leikskólinn er lokaður í 5 vikur að sumri í kringum júlí mánuð.
Foreldrasamstarf
Gott samstarf foreldra og leikskóla er forsenda fyrir góðri líðan barnsins í leikskólanum. Samvinna foreldra og leikskóla þarf að byggjast á gagnkvæmri virðingu og opnum samskiptum. Foreldrum er ávallt velkomið að dvelja í leikskólanum og taka þátt í starfinu.
Leikföng að heiman
Ekki er æskilegt að börnin komi með leikföng að heiman. Einn leikfangadagur er í hverjum mánuði, þar sem börn mega koma með leikföng að heiman og er það 1.þriðjudagur í hverjum mánuði. Stríðs- og/eða bardagaleikföng eru ekki leyfð. Engin ábyrgð er tekin á leikföngum að heiman.
Afmæli barnanna
Afmælisdagar barnanna eru stórir dagar í lífi þeirra og er að sjálfsögðu haldið upp á þá í leikskólanum. Við sjáum um að gera daginn sérstakan fyrir barnið með ýmsum hætti og eru foreldrar velkomnir að koma og taka þátt í gleðinni.
Skipulags– og námskeiðsdagar
Skipulagsdagar eru 4 á ári. Skipulagsdaga notar starfsfólk til að skipuleggja, undirbúa og endurmeta starf sitt. Leikskólinn er lokaður á skipulagsdögum og eru þeir auglýstir með a.m.k. 4 vikna fyrirvara.
Starfsmannafundir
Starfsmannafundir eru 5 á ári á milli klukkan 08:00-10:00. Starfsmannafundi notar starfsfólk til að skipuleggja, samræma og endurmeta starf sitt. Leikskólinn er lokaður á meðan fundi stendur og eru þeir auglýstir með a.m.k. 4 vikna fyrirvara.
Klæðnaður / Aukaföt
Mikilvægt er að klæðnaður barnanna sé þægilegur þannig að hann hefti ekki leikgleði þeirra. Klæðið börnin eftir veðri en hafið það ætíð hugfast að börn hreyfa sig mikið við leik úti og geta því svitnað ef þau eru mikið klædd. Nauðsynlegt er að barnið hafi með sér aukafatnað og nauðsynlegt er að merkja fatnaðinn. Í leikskólanum vinnum við með ýmis efni s.s. lím og málningu sem geta farið í föt barnanna þó svo starfsfólk leiti allra leiða til að svo verði ekki. Vinsamlegast takið tillit til þess.
Dvalargjöldin
Gjöldin eru greidd fyrirfram, greitt er fyrir einn mánuð í senn og gjald lækkar ekki þó barn sé fjarverandi. Skuldi foreldrar tvo mánuði er barninu sagt upp leikskólarýminu.
Gagnkvæmur uppsagnafrestur er einn mánuður og miðast við 1. og 15. hvers mánaðar. Hægt er að sækja um breytingar á vistunartímum hjá Skólastjóra.
Starfsfólk Leikskóla
Leikskólastjóri er yfirmaður leikskóla og ber ábyrgð á rekstri leikskólans og að unnið sé eftir Aðalnámskrá leikskóla og skólanámskrá heilsuleikskólans Háaleitis.
Aðstoðarleikskólastjóri vinnur að daglegri stjórnun og skipulagningu ásamt leikskólastjóra og er staðgengill leikskólastjóra að honum fjarverandi.
Deildarstjóri ber ábyrgð á uppeldi og menntun barnahópsins á sinni deild. Hann ber einnig ábyrgð á foreldrasamstarfi á deildinni.
Kennarar vinna í samstarfi við deildarstjóra að uppeldi og menntun barnanna.
Fagstjórar sjá um skipulagningu og kennslu í hreyfingu og listsköpum.
Sérkennari veitir börnum sem þurfa á sérkennslu að halda sérstaka aðstoð og kennslu og gætir þess að þau sé hluti af barnahópnum.
Matráður og starfsfólk í eldhúsi sjá um samsetningu matseðla, innkaup, matartilbúning og þvotta.
Ræstitæknar sjá um þrif.
Allt starfsfólk leikskólans er bundið þagnarskyldu og þær upplýsingar sem starfsmaður fær um barnið eru trúnaðarmál.
Þagnarskylda helst þó látið sé af starfi.